Skólastefna
Við skipulag skólastarfs er tekið mið af nútíma þekkingarsamfélagi og horft til þess hvaða færni er mikilvægt að efla hjá komandi kynslóð. Áhersla er lögð á að örva sjálfstæða og gagnrýna hugsun. Litið er á nemendur sem sjálfstæða einstaklinga sem hafa ákveðin réttindi en jafnframt skyldur og ábyrgð.
Í skólastarfinu er lögð rík áhersla á Vináttu, Vísindi og Listir
- Allir eru einstakir
Litið er svo á að mannleg samskipti og ábyrg hegðun séu grunnþættir í skólastarfinu og að forsenda náms sé að nemendum líði vel í skólanum. Áhersla er lögð á fjölbreytta og sveigjanlega kennsluhætti í samræmi við einstaklingsmiðað nám. Gagnkvæm virðing er forsenda jákvæðra samskipta og nauðsynlegt er að starfsfólkið sýni gott fordæmi í þeim efnum. Reynt er að stuðla að því að öllum geti liðið vel í skólanum. Starfsmenn skólans leggja sig fram við að eiga jákvæð samskipti við heimilin og hvetja foreldra til þess að hafa samband þegar þeim liggur eitthvað á hjarta. Þegar heimili og skóli leggjast á eitt má búast við betri líðan nemenda, auknu öryggi og betri námsárangri.
Álftanesskóli býr við fjölbreytta náttúru þar sem stutt er í fjörur, fjölskrúðugt fuglalíf, tjarnir og skemmtilegt umhverfi í göngufæri og er áhersla lögð á tengsl við umhverfið í skólastarfinu. Skólastarfið fer að hluta til fram utandyra og er gert ráð fyrir því að allir nemendahópar séu að lágmarki eina kennslustund í útikennslu á viku. Áhersla er á að nemendur tileinki sér ábyrgan lífsstíl og virðingu gagnvart mönnum, dýrum og umhverfi sínu.
Áherslur í skólastarfi Álftanesskóla 2008
Educational emphasis 2007-2010